Hugbúnaðarlausnir
Einfaldleiki, áreiðanleiki, skilvirkni
Rún Solutions smíðar og rekur sínar eigin hugbúnaðarlausnir og veitir ráðgjöf við hönnun og þróun hugbúnaðarkerfa — skrifaðar í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar.
Einfaldleiki
Einfaldar lausnir eru árangursríkar. Við nálgumst hvert vandamál með það að leiðarljósi að lausnin sé eins einföld og kostur er. Occam's Razor!
Áreiðanleiki
Áreiðanleikinn verður auðsóttari með einfaldleikanum. Einföld kerfi þarfnast minna viðhalds og eru áreiðanlegri bæði í notkun og rekstri.
Skilvirkni
Við segjum stoltir frá því að hafa skilað hverju einasta verki á réttum tíma. Sá árangur fæst með áralangri reynslu af stórum, alþjóðlegum verkefnum.
Um okkur
Sérsmíðaður hugbúnaður og ráðgjöf
Við lítum á sterka þróunarsamvinnu sem lykilinn að góðu samstarfi. Lausnir okkar eru skrifaðar í nánu samstarfi við viðskiptavini, frá hugmynd og hönnun yfir í þróun, afhendingu og rekstur.
Að baki liggur áralöng reynsla af því að leiða stór, alþjóðleg hugbúnaðarverkefni — reynsla sem skilar sér í einföldum, áreiðanlegum kerfum sem standast tímans tönn.
Ræðum verkefnið þittLausnir · Tólspor
Utanumhald um samnýttan búnað
Tólspor gerir fyrirtækjum kleift að halda betur utan um notkunarsögu og staðsetningu búnaðar sem samnýttur er á vinnustað — með beinni tengingu við vinsælustu verkbeiðna-, kostnaðar- og tímaskráningarkerfi landsins.
Skoða Tólspor nánarMinnka kostnað
Betri yfirsýn yfir notkun og endingu búnaðar dregur úr óþarfa kostnaði.
Auka tekjur
Möguleiki á útleigu búnaðar og dýnamísku verkfæragjaldi opnar nýjar tekjuleiðir.
Minnka sóun
Aukin skilvirkni innan vinnustaðar nýtir búnað og tíma betur.
Samþættingar







Viðskiptavinir
Fyrirtæki sem treysta okkur
Umsagnir og nokkur af þeim fyrirtækjum sem nýta lausnir Rún Solutions í daglegum rekstri.

















Frábært kerfi sem heldur utan um öll okkar verkfæri. Kerfi er að skila okkur auknum tekjum með því að leifa kostnaðarskráningu sem beintengist verkum. Verkfærin finnast ef þú glatar þeim eða gleymir á vinnustað. Greiðari aðgangur að verkfærum fyrir starfsmenn. Minnkar hringingar og álag á verkstjóra.
Heiðar Theódór
HeiðGuð Byggir
Gott og notendavænt kerfi sem heldur vel utan um verkfærin okkar! Vandamál með týnd verkfæri svo gott sem úr sögunni. Starfsmenn eru ánægðir með að geta gengið beint að hlutunum, mikill tímasparnaður. Auknar tekjur vegna kostnaðarskráningar mun hærri en ég þorði að vona. Þetta er kerfi sem við hefðum viljað taka upp miklu fyrr.
Reynir Ingi Davíðsson
Íslenskir Rafverktakar
Strákar! Ég er tæknilega heftur en jafnvel fyrir mig er kerfið gríðarlega einfalt og þægilegt í notkun. Við sem 35 manna fyrirtæki vorum ekki lengi að koma þessu af stað og byrja að nota kerfið af krafti. Hvort sem það er yfirsýnin, lækkun kostnaðar við búnaðarkaup eða auknar tekjur af leigu þá hefur það allt farið fram úr björtustu vonum.
Reynir Þór Jónasson
HeiðGuð
„Við höfum skilað hverju einasta verki á réttum tíma.“
Árangur sem byggir á áralangri reynslu af stórum, alþjóðlegum hugbúnaðarverkefnum.
Tilbúin að einfalda kerfin ykkar?
Hafðu samband og við ræðum hvernig einföld, áreiðanleg lausn getur skilað sér í rekstri ykkar.
Hafa samband